Eyturlyfjasmygl alvarlegasti glæpurinn?

Það mætti ætla eftir lestur frétta sl. daga að eyturlyfjasmygl væri mesti glæpur sem hægt er að drýgja á landinu.  Lögfræðingur er dæmdur fyrir kynferðisglæp gegn unglingsstúlkum en maðurinn fær aðeins 3 ára dóm og viti menn, hann er staddur á Spáni með fjölskyldunni þegar úrskurður er kveðinn upp!!!   Ekki það að ég sé að setja niður þær aðgerðir lögreglunnar að uppræta að einhverju leyti eyturlyfin sem flæða inn á markaðinn hér, en er ekki kominn tími til að alþingi taki sig til og herði glæpi sem falla undir kynferðis- og ofbeldisglæpi.

Það er orðið skrýtið þjóðfélag þar sem ofbeldisverk gegn konum og kynferðisleg misnotkun á börnum lætur í minni pokann fyrir eyturlyfum í dómskerfinu.  Það er kominn tími til aðgerða og herðum nú dóma gegn barnanauðgurum.!!!!!!!!!!!!


mbl.is Áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni grunuðum um kókaíninnflutning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli mennirnir í spíttskútumálinu fái fjórfallt lengri dóm en þessi barnaníðingur ?

Ruglað kerfi að mínu mati. 

stebbi (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 22:34

2 identicon

Ástæðan er einfaldlega sú að við erum að herma eftir Bandaríkjamönnum, en þeir hófu stríðið gegn fíkniefnum. Þeir hafa talað lengi um "zero tolerence" og slík viðhorf eru að fara vaxandi hér á landi, því miður. Stríðið er löngu komið úr böndunum og gerir fleira slæmt heldur en gott.

Furðulegt svo að það sé tekið svona hart á einhverju sem ríkið sjálft er að gera, ríkið er nefnilega stærsti fíkniefnasali landsins. 

Geiri (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 00:05

3 Smámynd: gudni.is

Já sammála... Þetta er ekki góð þróun og ég held að þessi hörkustefna í hörðum refsingum fyrir fíkniefnabrot geri bara undirheiminn forhertari. Það eina sem öruggt er, er það að eiturlyfin halda áfram að flæða inn í landið á meðan öll þessi gríðarlega eftirspurn er eftir þeim. Þeir sem standa í innflutningi verða bara forhertari og harðari til að fá síður dóm.

Það er ömulegt að horfa upp á menn fá kannski þrefallt til fjórfallt þyngri dóm fyrir að flytja inn fíkniefni heldur en menn sem t.d. misnota börn kynferðislega!!

gudni.is, 27.9.2007 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Laverne Lee

Höfundur

Einar Lee
Einar  Lee

Er í nýrnavél og reyni samt að vera jákvæður

póstfang; ell@hive.is

Persónulega bloggið er:

www.blog.central.is/lee33

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 494

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband