Kaupæði landans

Það er ekki að furða að ekkert lát sé á einkaneyslu landans.  Hér er ekkert nema verslanir út um allt og bankarnir fúsir að lána fólki endalaust fyrir kaupvitleysunni.  Sýnir sig hvað landinn er kaupóður að við slógum heimsmet í kaupum á dóti nokkrar helgar í röð eftir að Toys´R´Us opnaði og gerðum örugglega enn betur þegar Just for Kids opnaðiþ  Okkar helgarrúntur samanstendur af rölti í Kringlunni eða ferðum í stóru dótabúðirnar.  Rottukapphlaupið er ekki í rénun frekar en fyrridaginn og ekki nema furða, ríka liðið kaupir sér dýra hluti eins og einkaþotur risastór hús og dýra bíla, og við almúginn sjáum þetta allt í hyllingum, kaupum okkur líka fullt af dóti, nema við erum ekki rík og tökum þetta bara á lánum eða Visu skvísu á raðgreiðslum. 

Til að jafnvægi komist á í vaxtamálum þurfum við Íslendingar að fara að læra muninn á vöntun og löngun.  Kaupa bara það sem okkur vantar, en ekki það sem okkur bara langar í en h0fum ekki not fyrir.  Þó getum við verðlaunað sjálf okkur ef við stöndum okkur vel í þessu og keypt okkur eitthvað sem okkur bara langar í öðru hvoru, en ekki bara alltaf eins og raunin er nú.

Sláum á þensluna og hættum að spreða.


mbl.is Ekkert lát virðist á einkaneyslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég held að fólki ráði nú hvað það gerir við peninginn sinn ef það hefur nú ráð á því .en þetta minnir á á mann í

tilvistar kreppu sem á ekki bót fyrir rassinn á sér.

sæþór jensson (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 00:00

2 identicon

Rétt Sæþór.  En vandinn er bara sá að fólk er að kaupa allt og ekkert án þess að eiga bót fyrir rassinn á sér.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 00:08

3 Smámynd: Einar  Lee

Maður í tilvistarkreppu sem á ekki bót fyrir boruna á sér.......Ekki rétt lýsing á mér, en jæja. 

Það sem ég var að benda á er það sama og Guðrún B bendir á, þetta er svo mikið keypt á lánum, sem gerir það að verkum að það verður þensla, sem leiðir til hás vaxtastigs, sem kemur illa niður á fleirum heldur en bara kaupæðisliðinu.

Og Sæþór, ekki ráðast á persónu bara af því hún hefur skoðun.  Reyndu frekar að vera málefnalegur og r-kræða skoðun mína, ég þoli nefnilega ekki fólk sem getur illa komið fram máli sínu og ræðst bara á mig í staðinn.  Skoðanir manneskju og manneskjan eru tveir ólíkir hlutir.

Einar Lee, 25.11.2007 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Laverne Lee

Höfundur

Einar Lee
Einar  Lee

Er í nýrnavél og reyni samt að vera jákvæður

póstfang; ell@hive.is

Persónulega bloggið er:

www.blog.central.is/lee33

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 512

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband