Lausn á hraðakstursvandanum á Digranesvegi

Eftir að hafa ekið þessa leið til margra ára er ég farinn að skilja af hverju ökumenn fara yfir hámarkshraða á Digranesveginum.  Það er ekkert leiðinlegra en að aka á vegi þar sem varla  eru 100 metrar á milli hraðahindrana, og tel ég að lausn vandans sé að fækka hraðahindrunum stórlega á þessum vegi, og kannski bara á öllu höfuðborgarsvæðinu, þar sem þær skapa pirring í umferðinni og menn fara ósjálfrátt að aka hraðar og verða fúlir á móti ökumennirnir í umferðinni.

Ég held ég geti sagt það með vissu að hvergi sem ég hef komið í heiminum hafi ég séð eins mikið af hraðahindrunum og notaðar eru hér á landi.  Lausn  hraðakstursvanda innan borgarinnar er ekki að auka alls kyns hindranir, heldur að eyða sömu peningum í að gera lögregluna sýnilegri.

Minnkum pirringinn, fækkum hindrunum og lögum gatnakerfið.


mbl.is 184 brutu umferðarlög á Digranesvegi í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála... þetta er leiðinlegasta gata á höfuðborgarsvæðinu. Oft sem nemendur verða pirraðir á þessu (seinir í tíma) og bruna á milli hraðahindrana.

Lögreglan er mjög löt við það að mæla í íbúðarhverfum, heldur sig á stóru brautunum þar sem mestu peningarnir eru. Mætti bara leggja niður hraðahindranir almennt, þetta er ekkert annað en yfirlýsing á vantrausti. Eins og þú segir á lögreglan bara að vera sýnilegri, og mæla oftar í íbúðarhverfum. 

Geiri (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 15:45

2 identicon

kondu til Noregs, hér kunna menn að búa til hraðahindranir. En þína lausn er ég ekki að fatta.

Ingthor (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 15:45

3 identicon

Allir í strætó !!

Guðrún B. (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Laverne Lee

Höfundur

Einar Lee
Einar  Lee

Er í nýrnavél og reyni samt að vera jákvæður

póstfang; ell@hive.is

Persónulega bloggið er:

www.blog.central.is/lee33

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 476

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband