19.11.2007 | 12:35
Vafasamt mál
Því miður er það vafasamt mál hvort megi dreifa efni á netinu eða ekki. Við erum að greiða höfundarréttargjöld af óbrenndum cd- og dvd diskum og þar með er eiginlega búið að gefa leyfi fyrir dreifingu efnisins. Dómar þess efnis hafa t.d fallið í Noregi og víðar. Torrent síður stuðla líka að því að auglýsa efni og flestir sem nota þessar síður ná í efni, en ef þeim líst vel á það, þá fara þeir í næstu búð og kaupa original útgáfu, því brenndir diskar endast mun skemur en þeir pressuðu sem maður kaupir út í búð.
Áætlað er að yfir helmingur heimila í landinu hali niður efni af netinu á ólöglegum síðum og skrýtið þá að menn láti ekki loka fyrir törrent niðurhal alveg á sæstrengjum landsins. Þá værum við komin út á þá braut að fara að ritskoða netið, en hingað til hefur netið verið grundvöllur sem er óritskoðaður, og flestir vilja ekki fá almenna ritskoðun á því, því þá yrði fjandinn laus og helmingur síða á netinu yrði lokaður og háð duttlungum einhverra ákveðinna manna hvað má og má ekki á netinu. Lefum torrent.is oeða tökum höfundarrétttargjöld af diskum og já Spilurum líka því með öllum diskaspilurum erum við líka að greiða sömu gjöld
Taka má líka fram að torrent.is hefur virt þá ósk Íslenkra höfnda að ekki sé deilt efni frá þeim ef þess sé óskað og hafa nokkrir aðilar nú þegar fengið sitt efni fjarlægt af síðunnni.
Eigandi Torrent yfirheyrður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Einar Laverne Lee
Tenglar
Digital hljóð o.fl. því tengt
Allt sem tengist Daisy tækninni og digital hljóðbókum
Vinirnir
Vinir á öðrum bloggsvæðum
Bloggvinir
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Þórdís tinna
- Óttarr Makuch
- Anna Lilja
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Bjarni Kjartansson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Gísli Foster Hjartarson
- gudni.is
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Gunna-Polly
- Heiða B. Heiðars
- Heiðar Már Guðlaugsson
- Jens Guð
- Kristinn Halldór Einarsson
- Lilja Sveinsdóttir
- Mín veröld
- Nína
- Ólafur Þórðarson
- Ómar Ragnarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Sigurbjörg Guðleif
- Þröstur Helgason
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll - rakst á bloggið þitt útfrá mbl.is (varla vafamál).
Þó súrt sé, með vísan í erlenda dóma eru forráðamenn vefsíðna sem veita aðganga að höfundarverðu efni mjög líklega ábyrgðir að hluta til. (má til dæmis benda á finreactor dóminn sem féll útí finnlandi) Þó þeir taki út íslenskt efni þá er margt efni þarna inni enn varið með höfundarrétti - erlent efni.
Margar áhugaverðar lausnir hafa komið fram í dagsljósið í kjölfar aukinnar umræðu um höfundarrétt og dreyfingu efnis og er ein sú að forráðamenn torrent.is t.d. myndu greiða stef gjöld líkt og útvarpsrásir til að höfundar tónlistar fengu sinn skerf [lesist; útgáfufyrirtækin] .. sem er aftur á móti allt önnu umræða.
Kveðja
María Einars.
majae (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 12:53
Ekki vera að gefa tónlist eða myndir eða neitt sem kemur Smáís við, í jólagjafir
því það þarf að koma fram við glæpamenn eins og glæpamenn
þeir gætu kannski farið að skilja þetta ef að salan hríðfalli frá og með deginum í dag
og af hverju er fólk ennþá að fara í bíó???? borga næstum 1000kall fyrir óendanlegar auglýsingar, 15-20min seinkun og sjoppu sem
halda mætti að allt væri gert úr gulli í
hvet alla til að láta í sér heyra varðandi þetta mál
vig (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 13:28
Já þú ferð með gott mál María, en ekki við öðru að búast af vel gefnum viðskiptalögfræðinema. Maður veltir samt fyrir sér því að við erum að borga höfundarréttargjöld af diskum. Er þar með ekki búið að gefa leyfi til drefingar efnisins?
By the way skoðaði síðuna þína og hún var helv....flott. Þú ert svona draumakona hvers karlmanns(tek þó fram að engin mynd af þér sást svo ég get ekki talað fyrir alla).
Ef þú vilt spjalla meira þá er msnið mitt einarlee@hotmail.com
Einar Lee, 19.11.2007 kl. 13:31
Ég vill benda fólki á að lesa þetta.
http://www.rlslog.net/piracy-isnt-that-bad-and-they-know-it/ganjha (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 14:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.